Andi Eystrasalts svífur yfir vötnum

8. ágúst 2024

Andi Eystrasalts svífur yfir vötnum

Baltic Reverie

Andi Eystrasalts mun svífa yfir vötnum á Orgelsumri í Hallgrímskirkju í Reykjavík um helgina.

Laugardaginn 10. ágúst kl. 12:00-12.30 munu Tuuli Rähni frá Eistlandi leika á orgel og Selvadore Rähni á klarínett.

Tuuli og Selvadore Rähni hafa spilað saman í yfir þrjá áratugi, haldið tónleika í mörgum löndum í Evrópu, Japan og á Íslandi og spilað inn á geisladiska sem hafa hlotið lof gagnrýnenda.

Á tónleikunum á laugardaginn munu þau flytja fjölbreytta dagskrá fyrir orgel og klarinett sem inniheldur frumsamin lög frá þeim báðum.

Efnisskráin er sem hér segir:

Sigvaldi Kaldalóns (1881-1946) - Ave María

Sigfús Halldórsson (1920-1996) - Dagný

Alexandre Guilmant (1837-1911) - Melody op.46, no.4

Alexandre Guilmant - March op.46, no.5

Wolfgang Amadeus Mozart (1756-1791) - 2.kafli úr Klarinettukonsert A-dúr

Tuuli Rähni (1968) - Prelude on Purcell's theme

Tuuli Rähni -Toccata

Johann Melchior Molter (1696-1765) - 1.kafli úr Klarinettukonsert no. 1, A-dúr

Selvadore Rähni (1968) / Brecker Brothers- Improvisation on Straphanging theme



Sunnudaginn 11. ágúst kl. 17:00 - 18:00 mun Baltic Reverie orgeldúóið leika á orgelið.

Baltic Reverie er samstillt orgeldúó sem samanstendur af hjónunum Vidas Pinkevicius og Ausra Motuzaite-Pinkeviciene organistum frá Litháen sem flétta saman tónlistarstíla ólíkra tónskálda frá löndunum í kringum Eystrasaltið.

Efnisskrá tónleikanna býður upp á ferð um fjölbreytt menningarlandslag Finnlands, Svíþjóðar, Eistlands, Lettlands, Litháens, Póllands, Þýskalands og Danmerkur.

Þessi tónlistarferð birtir einstaka arfleifð og listræna tjáningu þessara þjóða sem sýnir einleiksorgelverk sem endurspegla hefðir þeirra, stíl og sögu.

Meðal annars verða flutt verk eftir Mankell, Naujalis, Gade, Vidas Pinkevicius og til að heiðra íslenska menningu munu þau flytja verk eftir íslenska tónskáldið Hildigunni Rúnarsdóttur.

Hjónin halda úti bloggsíðunni Secrets of Organ Playing og YouTube rás og eru með podcast og æfingarsíðu fyrir þúsundir organista frá 89 löndum.

Einnig eru þau organistar við háskólann í Vilnius og leiða orgelstofu háskólans „Unda Maris“.

Á 27 árum saman hafa þau haldið yfir 300 tónleika í ýmsum löndum Evrópu og Bandaríkjanna.

Þess má að lokum geta að hjónin munu halda tónleika í Hóladómkirkju á Hólahátíð þann 18. ágúst næst komandi kl. 11:00 og í aðdraganda Hólahátíðar í Blönduóskirkju þriðjudaginn 13. ágúst kl. 13:00 og í Akureyrarkirkju miðvikudaginn 14. ágúst kl. 20:00.

 

slg



Myndir með frétt

  • Heimsókn

  • Kirkjustaðir

  • Kirkjustarf

  • List og kirkja

  • Menning

  • Samstarf

  • Tónlist

  • Alþjóðastarf

logo kirkjan.png - mynd

Þjóðkirkjan opnaði nýja vefsíðu

01. des. 2025
...Þjóðkirkjan opnaði nýja vefsíðu
Logo.jpg - mynd

Laust starf

21. nóv. 2025
... starf prests við Borgarfjarðarprestakall í Vesturlandsprófastsdæmi með sérstakar skyldur við prófastsdæmið
Sigurður flosa.jpg - mynd

Sigurður Flosason söngmálastjóri

18. nóv. 2025
Biskup Íslands hefur valið Sigurð Flosason tónlistarmann, tónskáld og tónlistarkennara í starf söngmálastjóra.