Sr. Helga Bragadóttir ráðin
Sr. Helga BragadóttirBiskup Íslands óskaði nýlega eftir presti til þjónustu við Digranes- og Hjallaprestakall í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra.
Umsóknarfrestur rann út 10. maí síðast liðinn.
Valnefnd kaus sr. Helgu Bragadóttur prest í Glerárprestakalli til þjónustunnar.
Prestakallið
Digranesprestakall og Hjallaprestakall voru sameinuð árið 2020 og mynda nú eitt öflugt prestakall með tvær sóknir og tvær fallegar kirkjur.
Prestakallið tilheyrir Reykjavíkurprófastsdæmi eystra og er hluti af samstarfssvæði kirkjunnar í Kópavogi sem byggir á góðu skipulagi og traustri samvinnu.
Presturinn
Sr. Helga Bragadóttir er fædd árið 1991 á Akranesi og ólst upp á Siglufirði og síðar í Hafnarfirði.
Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 2011 og hóf nám við guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands haustið 2014.
Sr. Helga útskrifaðist með mag. theol. próf frá Háskóla Íslands veturinn 2021.
Hún lauk framhaldsmenntun í sálgæslu hjá Endurmenntun Háskóla Íslands vorið 2022.
Hún hefur starfað í unglingastarfi og sunnudagaskóla í Grafarvogskirkju og í barnastarfi og sunnudagaskóla í Víðistaðakirkju ásamt því að gegna starfi kirkjuvarðar í afleysingum.
Sr. Helga hefur þjónað Glerárprestakalli frá 1. september 2022.
Unnusta sr. Helgu er María Ósk Jónsdóttir, grafískur hönnuður hjá Já.
Þær eiga tvo drengi, 7 ára og 5 mánaða.
Sr. Helga er þriðji ættliðurinn sem þjónar sem prestur.
Faðir hennar sr. Bragi J. Ingibergsson er sóknarprestur í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði, áður á Siglufirði og afi hennar sr. Ingiberg J. Hannesson fyrrum prófastur þjónaði alla sína starfsævi í Dölunum.
slg


.jpg?proc=NewsImageSmall)