Laust starf kirkjuvarðar

1. febrúar 2024

Laust starf kirkjuvarðar

Vetrarmynd af Hallgrímskirkju í Reykjavík

Hallgrímssókn auglýsir laust til umsóknar starf kirkjuvarðar við Hallgrímskirkju í Reykjavík.

Hallgrímskirkja er stærsta kirkja landsins og einn vinsælasti ferðamannastaður landsins.

Einnig er hún sóknarkirkja með öflugt og mikið helgi- og tónleikahald.

Starfsvið kirkjuvarða er margvíslegt og felst m.a. í umsjón með kirkju og búnaði hennar, undirbúningi helgihalds og tónleika, bókun viðburða í kirkju og safnaðarheimili, þrif á kirkju og salarkynnum svo og afgreiðslu í verslun.

Hæfniskröfur eru áhugi á kirkjulegu starfi, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfileikar og snyrtimennska, hæfni í mannlegum samskiptum, lipurð, stundvísi og þjónustulund.

Góð íslensku- og enskukunnátta er mikilvæg svo og almenn tölvukunnátta.

Um er að ræða fullt starf en einnig kemur til greina minna starfshlutfall.

Umsóknum skal fylgja ferilskrá um menntun og fyrri störf og samþykki fyrir öflun upplýsinga úr sakaskrá.

Hér má finna eyðublað um slíkt samþykki.

Nánari upplýsingar veitir Grétar Einarsson, kirkjuhaldari  gretar@hallgrimskirkja.is

 

slg

 


  • Kirkjustaðir

  • Starf

  • Auglýsing

logo kirkjan.png - mynd

Þjóðkirkjan opnaði nýja vefsíðu

01. des. 2025
...Þjóðkirkjan opnaði nýja vefsíðu
Logo.jpg - mynd

Laust starf

21. nóv. 2025
... starf prests við Borgarfjarðarprestakall í Vesturlandsprófastsdæmi með sérstakar skyldur við prófastsdæmið
Sigurður flosa.jpg - mynd

Sigurður Flosason söngmálastjóri

18. nóv. 2025
Biskup Íslands hefur valið Sigurð Flosason tónlistarmann, tónskáld og tónlistarkennara í starf söngmálastjóra.