Sembaltónar í Hvalsneskirkju

7. júlí 2023

Sembaltónar í Hvalsneskirkju

Hvalsneskirkja

Sumartónar í Hvalsneskirkju hófust þriðjudaginn 13. júní.

Á fyrstu tónleikunum voru það Hlín Pétursdóttir Behrens söngkona og Hrólfur Vagnsson harmonikuleikari sem fluttu tónlist á þjóðlegum nótum í bland við franska og suður-ameríska tónlist.

Næst komandi þriðjudag þann 11. júlí verða sembaltónar í Hvalsneskirkju kl. 19:30.

Það er Lára Bryndís Eggertsdóttir orgel- og semballeikari sem leikur á sembalinn verk eftir Carl Philipp Emanuel Bach (1714–1788), Élisabeth Jacquet de La Guerre (1665-1729) og Joseph-Nicolas-Pancrace Royer (1703-1755).

 

Semball er strengja- og hljómborðshljóðfæri og forveri píanós.

Semball hefur hljómborð, en hver lykill tengist þorni sem griplar strengi á láréttri hörpu í stað þess að slá á þá eins og í píanói.

Náskyld hljóðfæri eru klavíkord, spínetta og virgínall.

Semballinn var algengt hljóðfæri á barokktímanum og margir nútímasemballeikarar sérhæfa sig í tónlist frá þeim tíma.

Orðið semball á uppruna sinn í ítalska orðinu cembalo sem er stytting á orðinu clavicembalo sem hefur sömu merkingu.

Helga Ingólfsdóttir var brautryðjandi í semballeik á Íslandi.

 

Lára Bryndís Eggertsdóttir byrjaði ung að læra á píanó og 14 ára gömul tók hún fyrstu skrefin sem afleysingaorganisti í Langholtskirkju.

Hún lauk einleikaraprófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar með hæstu einkunn vorið 2002 undir handleiðslu Harðar Áskelssonar og tveimur árum síðar burtfararprófi í söng frá Söngskólanum í Reykjavík.

Lára Bryndís flutti árið 2018 aftur heim til Íslands eftir 10 ára búsetu í Danmörku þar sem hún lauk meistaraprófi í kirkjutónlist frá Tónlistarháskólanum í Árósum vorið 2014.

Aðalkennarar hennar þar voru Ulrik Spang-Hanssen á orgel, Lars Colding Wolf í semballeik, og Søren Kinch Hansen og Carsten Seyer-Hansen í kórstjórn.

Einnig starfaði hún sem organisti við Sønderbro kirkju í Horsens og semballeikari hjá barokksveitinni BaroqueAros í Árósum.

Fyrst eftir heimkomuna var Lára Bryndís organisti Hjallakirkju í Kópavogi og Neskirkju í Reykjavík, en er nú organisti og kórstjóri í Grafarvogskirkju.

Meðfram organistastörfunum kennir Lára Bryndís orgelleik við Tónskóla þjóðkirkjunnar og kemur fram sem orgel- og semballeikari við ýmis tækifæri.

Lára Bryndís hefur haldið fjölmarga einleikstónleika á orgel, bæði hérlendis og á hinum Norðurlöndunum, og hlotið ýmsa styrki og viðurkenningar, þ.á.m. tónlistarverðlaun Rótarý á Íslandi árið 2014.


Þriðjudaginn 8. ágúst verða síðan enskir gullaldartónar sem Eyjólfur Eyjólfsson syngur við undirleik Luke Anthony Starkey lútuleikara.

Þeir tónleikarnir hefjast einnig kl. 19:30.

 

slg



Myndir með frétt

Lárqa Bryndís Eggertsdóttir
  • Kirkjustarf

  • List og kirkja

  • Menning

  • Samstarf

  • Tónlist

  • Kirkjustaðir

logo kirkjan.png - mynd

Þjóðkirkjan opnaði nýja vefsíðu

01. des. 2025
...Þjóðkirkjan opnaði nýja vefsíðu
Logo.jpg - mynd

Laust starf

21. nóv. 2025
... starf prests við Borgarfjarðarprestakall í Vesturlandsprófastsdæmi með sérstakar skyldur við prófastsdæmið
Sigurður flosa.jpg - mynd

Sigurður Flosason söngmálastjóri

18. nóv. 2025
Biskup Íslands hefur valið Sigurð Flosason tónlistarmann, tónskáld og tónlistarkennara í starf söngmálastjóra.