HAUSTTÓNLEIKARÖÐ HALLGRÍMSKIRKJU 2022

8. september 2022

HAUSTTÓNLEIKARÖÐ HALLGRÍMSKIRKJU 2022

Hausttónleikaröð Hallgrímskirkju 2022 hófst laugardaginn 1. september með hádegistónleikum Steingrims Þórhallssonar organista Neskirkju í Reykjavík.

Sunnudaginn 25. september verða söfnunartónleikar undir heitinu „Hljómar frá heimsskautsbaugi - Söfnun fyrir nýjum kirkjuklukkum í Grímsey“ þar sem norðlenskt tónlistarfólk kemur fram. Þar er um að ræða Eyþór Inga Jónsson organista Akureyrarkirkju og söngvarana Ívar Helgason, Jónas Þór Jónasson, Kristjönu Arngrímsdóttur, Óskar Pétursson og Ösp Eldjárn. Auk þess taka Björn Steinar Sólbergsson organisti Hallgrímskirkju og Kór Hallgrímskirkju undir stjórn Steinars Loga Helgasonar þátt í tónleikunum.

Laugardaginn 1. október verða fjölskyldutónleikar undir yfirskriftinni Orgelhátíð barnanna þar sem Guðný Einarsdóttir og Sigrún Magna Þórsteinsdóttir leika frægustu orgelverk sögunnar ásamt þekktum lögum úr kvikmyndum og þar að auki má heyra Eurovision slagara. Ókeypis er á orgelhátíðina og allir eru velkomnir, stórir sem smáir.

Laugardaginn 30. október verða Hausttónleikar Kórs Hallgrímskirkju þar sem flutt verða bresk tónverk fyrir orgel og kór ásamt nýjum íslenskum kórverkum sem samin eru sérstaklega fyrir Kór Hallgrímskirkju. Verkin sem frumflutt verða eru eftir Hjálmar H. Ragnarsson, Hildigunni Rúnarsdóttur, Þorvald Örn Davíðsson, Elínu Gunnlaugsdóttur og Sigurð Sævarsson. Stjórnandi er Steinar Logi Helgason og Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgel. Einsöngvarar eru úr röðum kórfélaga. Dagana 4. og 5. nóvember verða tónleikar Kristjáns Hrannars Pálssonar organista og Umbra ensemble, en Hallgrímskirkja samstarfsaðili Iceland Airwaves.

slg
  • List og kirkja

  • Samstarf

  • Tónlist

  • Viðburður

  • Kirkjustarf

logo kirkjan.png - mynd

Þjóðkirkjan opnaði nýja vefsíðu

01. des. 2025
...Þjóðkirkjan opnaði nýja vefsíðu
Logo.jpg - mynd

Laust starf

21. nóv. 2025
... starf prests við Borgarfjarðarprestakall í Vesturlandsprófastsdæmi með sérstakar skyldur við prófastsdæmið
Sigurður flosa.jpg - mynd

Sigurður Flosason söngmálastjóri

18. nóv. 2025
Biskup Íslands hefur valið Sigurð Flosason tónlistarmann, tónskáld og tónlistarkennara í starf söngmálastjóra.