Það sem gleður og styrkir

31. mars 2020

Það sem gleður og styrkir

Mjög vinsæll diskur enda góður!

Þú átt sennilega nokkra geisladiska. Kannski heilan helling. Nú eru þeir að hverfa úr sögunni. Önnur tækni tekin við. 

En....

Hefurðu ekki komið að hylkinu tómu?

Örugglega. 

Diskurinn sem þú ætlar að hlusta á er ekki alltaf á sínum stað. 

En hér er leið sem flýtir fyrir þér. Fjórir klassadiskar sem þú getur hlustað á í tölvunni þinni, símanum, æpaddinum...

Nærir sálina Tónlistin rýfur einsemdina og gleður hugann, ýtir burt þunglyndi og kvíða. Hún er tungumál hjartans og eilífðarinnar. Á netinu er að finna íslenska sálmatónlist og ástæða er til að vekja athygli á henni þegar svo margir eru heima við.

Sálmar í gleði - lofgjörðarsálmar fluttir af Scola Cantorum og hljóðfæraleikurum. Stjórnandi er Hörður Áskelsson

Þennan geisladisk gaf Skálholtsútgáfan út á sínum tíma. 

 

Þá er það Schola Cantorum sem flytur Sálmar á nýrri öld  eftir Aðalstein Ásberg og Sigurð Flosason. Stjórnandi er Hörður Áskelsson. 

 

Svo er það Ellen Kristjánsdóttir með diskinn sinn: Sálmar.
(Ó, Jesús bróðir besti, og margir fleiri sálmar!)


Fús ég, Jesús, fylgi þér .... Þessi diskur var býsna vinsæll á sínum tíma.
Alls 37 sunnudagaskólalög sungin af sextán barnakórum.
Fyrir börn og fullorðna - upplagt að syngja saman með börnunum.
Skálholtsútgáfan gaf út.



hsh

 

  • Frétt

  • List og kirkja

  • Menning

  • Samfélag

  • Samstarf

  • Tónlist

  • Trúin

  • Menning

  • Samfélag

logo kirkjan.png - mynd

Þjóðkirkjan opnaði nýja vefsíðu

01. des. 2025
...Þjóðkirkjan opnaði nýja vefsíðu
Logo.jpg - mynd

Laust starf

21. nóv. 2025
... starf prests við Borgarfjarðarprestakall í Vesturlandsprófastsdæmi með sérstakar skyldur við prófastsdæmið
Sigurður flosa.jpg - mynd

Sigurður Flosason söngmálastjóri

18. nóv. 2025
Biskup Íslands hefur valið Sigurð Flosason tónlistarmann, tónskáld og tónlistarkennara í starf söngmálastjóra.