Trú.is

Hvunndagsgleði

Þetta kjarnar barnabókahöfundurinn í téðri bók þar sem Einar Áskell og pabbi hans barma sér undan því að óhóf hátíðarinnar skuli hafa vikið fyrir fábreytni hinna virku daga. Amman er eins og postuli eða spámaður sem talar af viti inn í vitlausan heim.
Predikun

Jósef og Heródes

Guðspjall dagsins er stutt en það er heilmikið um að vera: „Rís upp, tak barnið og móður þess og flý til Egyptalands. Þar skaltu vera uns ég segi þér því að Heródes mun leita barnsins til að fyrirfara því.“ Draumur Jósefs minnir á hina draumana – Það er hann þarf ekkert að óttast, hvorki þungun Maríu né Heródes konung og hermenn hans. Jósef treysti Guði og umhyggju og þess vegna hlýddi hann boðun engilsins. Hér takast á tvö andstæð öfl, annars vegar traust og hins vegar græðgi eða jafnvel ótti.
Predikun

Gildi ársins

Þjóð sem býr yfir góðum gildum er sterk þjóð. Þjóð sem velur kærleika sem mikilvægasta gildið er góð þjóð. Kærleikurinn er nefnilega svarið. Kærleikurinn er mótvægi við hörku og þjóð sem setur kærleikann efst er þjóð sem ekki stendur á sama um náungann. Ég er bjartsýn fyrir hönd þjóðar sem velur kærleikann sem sitt grunngildi.
Predikun

Hvítan í augunum

Sjálf getum við á hinn bóginn, með augnaráðinu einu, tjáð okkur og lýst tilfinningum sem getur komið sér vel í friðsamlegum samskiptum en getur líka gefið á okkur höggstað. Þetta er auðvitað best falið ef við erum í stöðugri keppni um að komast að. En sú er ekki raunin hjá okkur. Bara með því að horfa hvert á annað getum við sent þýðingarmikil skilaboð.
Predikun

Áramótaskaup, flugeldar og gleðilegt ár!

Áramót eru sérstakur tími. Þau eru tækifæri til að líta yfir farin veg og spyrja hvort við höfum gengið götuna til góðs. En jafnframt tækifæri til að horfa fram á veginn og hefja nýtt ár með Guði.
Predikun

Löngu horfin jól

Minningar um jól æskunnar búa lengi í hjörtum okkar. Að fara til kirkju á jólum er falleg og góð hefð og eiga margir fallegar minningar af jólamessum æskuáranna. Þó að sumum hafi eflaust þótt nóg um og minnast helst hversu löng messan var eða hve ofboðslega löng predikun prestins var.
Predikun

Jóladagtal Nýja testamentisins

Jóladagtöl eiga sér langa og skemmtilega sögu, en þau sækja uppruna sinn til mótmælenda í Þýskalandi. Jóladagatalið telur niður til jóla og stærsti og besti glugginn er jafnan sá síðasti. Í Nýja testamentinu er líka eins konar jóladagatal, Jóhannes skírari, sem tekur niður að Kristi, þar til myndin af honum verður ljóslifandi.
Predikun

Ljós af ljósi

Rétt eins og við þiggjum af kærleika Guðs að þannig leitumst við eftir því að bera áfram ljósið hans um heiminn og leyfa því að upplýsa og móta hjarta og huga; menningu og mennsku okkar. Það hefur nefnlilega gjarnan þótt affarasælla að kveikja ljós, frekar en að bölva myrkrinu - og liggja svo meinvill þar í.
Predikun

Fjórar trúarlegar myndir nr. 2 og 3, á Stefánsdegi píslarvotts

Önnur myndin í seríunni minni Fjórar trúarlegar myndir er túlkun mín á málverki El Greco Angrið / angistin í Garðinum. Það er föstuþema en aðventan og langa fasta fyrir páska eru tímabil iðrunar og bæna. Litur kirkjuársins þá er fjólublár. Þriðja myndin í seríunni minni Fjórar trúarlegar myndir er túlkun mín á málverki Marc Chagall Hvít krossfesting. Það er þema föstudagsins langa, þjáning og dauði Krists. Myndin á að túlka að í dýpstu þjáningu er Guð, ekki er til þær aðstæður að Guð sé ekki þar. Litur kirkjuársins þá er fjólublár eða svartur.
Pistill

Orð verður hold

Hvernig getur orð verið hold? Hér setur Jóhannes fram þessa þverstæðu sem er kjarni kristinnar trúar. Hún grundvallast ekki á lögmáli, forskrift um það hvernig lífi okkar skuli háttað, ströngum reglum sem ná yfir stórt og smátt í fari fólks heldur þvert á móti. Hún er óður til þess hvernig persónan Jesús Kristur stígur fram í auðmýkt og lítillæti en um leið í þeirri mannlegu reisn sem talar til alls mannkyns.
Predikun

Slær ljóma á þögnina

Þetta fallega orð „hátíð“ hefur mér alltaf fundist svo skemmtilegt að hugleiða í samhengi annarra tíða. Já, þátíðin geymir viðburði sem flestir gleymast. Framtíðin er óráðin og óviss. Þar á milli – nútíðin sem er þó ekki neitt, skurðarpunktur þess liðina og hins ókomna. Eins og þrenging í tímaglasi. Eins og núll sem stendur á milli tveggja tölustafa. Í því samhengi er hátíðin eitthvað sem hefur sig yfir aðrar tíðir. Svo aftur sé vitnað í orð Hannesar:
Predikun

Útvarpsguðsþjónusta Jóladag 2025

Friðurinn sem Kristur færir er ekki aðeins persónulegur. Hann kallar okkur til ábyrgðar: að leyfa ljósinu að skína út frá okkur, inn í fjölskyldur okkar, samfélagið okkar og heiminn allan. Jólin minna okkur á að Guð birtist í mannlegri mynd, til að við mættum sjá að hver manneskja ber dýrmæti hans í sér.
Predikun